Erlendur ferðamaður slasaðist á bifhjóli
Þann 17. júlí síðastliðinn féll erlendur ferðamaður af bifhjóli á Kjalvegi, sunnan Blöndulóns.
Samkvæmt Lögreglunni á Norðurlandi vestra, var maðurinn vanur hjólamaður í sínu heimalandi sem tók á leigu bifhjól til aksturs á svona vegum en síðan hafi eitthvað gerst hjá honum og hann misst vald á hjólinu og lent utanvegar í stórgrýti við vegaöxlina og lemstrast við það. Ekki þótti verjandi að aka manninum eftir þessum vegi, með tilliti til öryggis hans og því var beðið um þyrlu sem flutti hann á gjörgæslu. Engar upplýsingar hafa komið fram um líðan mannsins enn sem komið er.