Fá sérfræðing til aðstoðar í samningaviðræðum við ríkið
Byggðarráð Svf. Skagafjarðar samþykkir að fela sveitarstjóra að fá sérfræðing til viðræðna við ráðið um aðstoð við sveitarfélagið í samningaviðræðum við ríkið um framtíð Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki. Þetta kom fram á fundi byggðarráðs sveitarfélagsins sl. fimmtudag.
Á fundinum var jafnframt lögð fram svohljóðandi tillaga sem vísað var til byggðarráðs frá 312. fundi sveitarstjórnar:
„Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir fundi með þingmönnum kjördæmisins til að ræða stöðu Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki og áform sveitarfélagsins um hugsanlega yfirtöku þess á rekstri heilbrigðisstofnunarinnar.“
Byggðarráð samþykkti fyrirliggjandi tillögu og fól sveitarstjóra að óska eftir fundi með þingmönnum kjördæmisins.