Fákaflug hefst á föstudag

Fákaflug 2011 á Vindheimamelum hefst föstudaginn 29. júlí kl.18:00 á forkeppni í tölti. Nánari dagskrá og ráslistar birtast fljótlega.

Veitingasala verður á svæðinu alla helgina og á laugardagskvöldið verður kvöldvaka með lifandi tónlist, söng og gleði. Miðaverð inn á svæðið er kr.2.000,- fyrir alla helgina, innifalið í því er tjaldsvæði fyrir þá sem vilja gista, 14 ára og yngri fá frítt inn á svæðið.

Að gefnu tilefni viljum við benda á að keppendur þurfa ekki að borga sig inn á svæðið.

Fleiri fréttir