Fákaflug um verslunarmannahelgina
Fákaflug 2011 verður haldið á Vindheimamelum dagana 29.-31. júlí nk. Keppt verður í A-flokk, B-flokk, Ungmennaflokk, Unglingaflokk, Barnaflokk, 100m skeiði, tölti og ef næg þátttaka fæst verður einnig keppt í 300m brokk og 250m stökk kappreiðum. Keppt verður í sérstakri forkeppni.
Skráning er hjá Guðmundi á netfanginu badboy@simnet.is og lýkur skráningu á miðnætti þann 25. júlí. Gefa þarf upp keppnisgrein, nafn og kennitölu knapa og IS númer hrossins við skráningu.
Skráningargjald er kr. 3.000,- og skal það greiðast inn á reikning 161-26-269, kt.620269-6979 með nafni knapa í skýringu og senda staðfestingu í tölvupósti á badboy@simnet.is.
Mótið hefst föstudagskvöldið 29. júlí kl.18:00 á forkeppni í tölti, nánari dagskrá verður auglýst síðar.