Fálki myndaður á Sauðárkróki
Myndarlegur fálki hefur svifið yfir Sauðárkróki í dag og hefur vakið athygli árvökulla bæjarbúa. Vegfarandi sem var fálkans var sagði að hann hefði verið nýbúinn að veiða sér fugl til matar og sat að snæðingi þar til hann truflaðist af vegfarandanum.
Fálkinn kom sér þá vel fyrir á girðingastaur efst á Kambastígnum og beið þess að verða myndaður. Í flýtinum gleymdi myndatökumaður Feykis þrífæti en náði þó þessum myndum.
http://www.youtube.com/watch?v=FBBlHIXlGV8&feature=youtu.be