Fannfergi á Öxnadalsheiði - myndband

Öxnadalsheiði var lokuð frá miðvikudagskvöldi þangað til í gær en mikill snjór var á heiðinni og þurftu björgunarsveitarmenn ítrekað að koma fólki til aðstoðar þrátt fyrir lokanir, eins og kom fram í frétt Feykis.is í gær.

Samkvæmt frétt á Mbl.is sátu um 250 manns fastir í Varmahlíð vegna lokunarinnar þegar mest var. Að sögn starfsmanns N1 voru þeir sem biðu þar lengst um tvær til þrjár klukkustundir í söluskálanum og sagði hann að flesta pollrólega, þó unglingar og yngri ferðalangar hafi margir verið orðnir nokkuð óþreyjufullir.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi, sem birt var á Facebook síðu Arctic Sport, var gríðarmikill snjór á Öxnadalsheiði og átti jafnvel snjómokstursbíll fullt fangi með að koma sér í gegnum fannfergið.

Fleiri fréttir