Farskólinn óskar eftir að ráða verkefnastjóra

Þau leiðu mistök urðu í auglýsingu Farskólans í Sjónhorninu sem kom út í dag að óskað var eftir að ráða skólastjóra til starfa en raunin er að Farskólinn leitast eftir að ráða verkefnastjóra. Í auglýsingunni segir að Farskólinn leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingi/einstaklingum til að takast á við lifandi og fjölbreytt starf verkefnastjóra í símenntun. Náin og þétt teymisvinna starfsfólks er ríkjandi í verkefnum Farskólans. Til greina kemur að ráða í fleiri en eina stöðu og starfshlutfall og vinnutími getur verið umsemjanlegur.

Umsóknarfrestur er til og með 5. Júní 2025. Sótt er um starfið á www.mognum.is. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Ólafsdóttir í sigga@mognum.is

 

Fleiri fréttir