Afmælishátíð Ungmennafélagsins Fram

Ungmennafélagið Fram á Skagaströnd fagnar 100 ára afmæli sínu um þessar mundir en félagið var stofnað árið 1926. Umf. Fram hefur í heila öld verið einn af hornsteinum íþrótta- og félagslífs á Skagaströnd og í tilefni af aldarafmælinu býður stjórn félagsins öllum félögum og velunnurum til afmælishátíðar í Fellsborg sunnudaginn 29. nóvember. Hátíðin hefst klukkan 14:00 og stendur til klukkan 17:00.

Í boði verða léttar veitingar og ræðuhöld hefjast klukkan 14:15. Þá verða heiðursverðlaun veitt. Allir félagar og velunnarar félagsins eru hvattir til að mæta og fagna þessum merka áfanga í sögu félagsins.

Í dag heldur Umf. Fram utan um fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni á Skagaströnd auk þess að standa fyrir ýmsum viðburðum sem stuðla að hreyfingu og samfélagsþátttöku. Aldarafmælið markar því tímamót í sögu félagsins og jafnframt tækifæri til að rifja upp mikilvægt framlag þess til íþrótta-, félags- og menningarlífs á Skagaströnd í heila öld.

Fleiri fréttir