Fatamarkaður í Ljósheimum í dag

Original fatamarkaður verður haldinn í Ljósheimum í dag frá klukkan 13 til 19. Samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu misfórst auglýsing sem fara átti inn á öll heimili á Sauðárkróki en í boði verða frábær skóla- og leikskólaföt á börnin og úrval af haustvörum á frábæru verði. M.a. allt að 40% afsláttur á sumarvörum.

Peysur, gollur, jakkapeysur, bolir og hlýrabolir er meðal þess sem dömurnar geta nálgast auk buxna, leggings og kjóla svo eitthvað sé nefnt og á herrana eru Chinobuxur í mörgum litum og m.fl. Á börnin er hægt að fá fjölbreytt úrval af skólafötum en einnig eru klútar, slæður og armbönd á boðstólnum.

Fleiri fréttir