Féll 3-4 metra niður í fjöru á Vatnsnesi

Seinnipartinn á laugardaginn var Björgunarsveitin Húnar kölluð út vegna manns sem hafði slasast í fjörunni við Skarð á Vatnsnesi. Var hann á göngu þegar hann féll um 3-4 metra niður í fjöruna.
Í tilkynningu frá slysavarnarfélaginu Landsbjörgu kemur fram að sjúkrabíll hafi verið kallaður á staðinn en vegna erfiðra aðstæðna þurfti aðstoð björgunarsveitarmanna til að koma manninum í sjúkrabílinn. Gekk það vel og var maðurinn ekki talinn alvarlega slasaður.