Fengu óveðurskistur að gjöf
Slysavarnadeildin Káraborg færði björgunarsveitinni Húnum í Húnaþingi vestra afmælisgjöf nú á dögunum en það voru tvær vel búnar verkfærakistur með verkfærum og öðrum búnaði til að nota í óveðursútköllum.
Á heimasíðu björgunarsveitarinnar kemur fram að fimm ár voru þann 24. febrúar sl. frá sameiningu björgunarsveitanna Káraborgar og Flugbjörgunarsveitar V-Hún. „Færum við Slysavarnadeildinni okkar bestu þakkir fyrir þessu glæsilegu gjöf,“ segir loks á heimasíðunni.