Ferðafélag Skagfirðinga í gönguferð
Laugardaginn 3. ágúst mun Ferðafélag Skagfirðinga standa fyrir gönguferð þar sem farið verður frá Illugastöðum í Laxárdal, gengið suður Skálárhnjúksdal að Trölla og niður Kálfárdal.
Mæting er klukkan níu þar sem ekið verður frá Faxatorgi á einkabílum að Illugastöðum og einnig er haldið heim á einkabílum. Gönguferðin tekur u.þ.b. fimm klukkustundir og eru vatnsþéttir gönguskór æskilegir. Gjald er kr. 2000 fyrir félagsmenn en kr. 4000 fyrir utanfélagsmenn. Fararstjóri er Ágúst Guðmundsson.