Ferðaþjónustan í Keldudal bætir við gistirýmum
Þórarinn Leifsson og Guðrún Lárusdóttir í Keldudal í Skagafirði hafa nú bætt við gistirýmum í ferðaþjónustustarfsemi sína og eru nú eigendur Leifshúss, gamla íbúðarhússins í Keldudal. Á bænum er boðið upp á sumarhúsagistingu en að sögn Guðrúnar hafa þau nú tvöfaldað gistipláss sitt.
„Leifshús verður leigt úr sem sumarhús, það er 145 m2, hlýlegt og fallegt hús með góða sál,“ segir Guðrún en húsið var upphaflega byggð árið 1935 en var endurgert árið 1994. Þá var byggð önnur hæð ofan á húsið, það endurgert að innan og klætt að utan.
Guðrún segir mikla eftirspurn hafa verið á gistiplássi hjá þeim á sumrin en jafnan hefur verið fullt frá miðjum júní fram í miðjan september. En rólegra hefur verið yfir veturinn.