Fimm frá Tindastóli í æfingahópa yngri landsliða

Landsliðsþjálfarar yngri landsliða KKÍ hafa valið æfingahópa sína fyrir komandi mót en nokkrir leikmenn Tindastóls eru þar á meðal.  Sumir hópanna voru kallaðir til fyrir jól en aðrir eru nú í æfingabúðunum.

 

Jón Halldór Eðvaldsson, landsliðsþjálfari U15 ára landsliðs stúlkna, valdi þær Guðlaugu Rún Sigurjónsdóttur og Árdísi Evu Skaftadóttur í 25 manna æfingahóp U15, sem undirbýr sig fyrir þátttöku í Copenhagen Invitational mótinu í Kaupmannahöfn sem haldið verður 21. - 24. júní.

Tómas Holton valdi þær Ólínu Sif Einarsdóttur og Þórönnu Ósk Sigurjónsdóttur í 25 manna æfingahóp U16 ára landsliðs stúlkna, en liðið mun bæði taka þátt í Norðurlandamótinu í Svíþjóð 16. - 20. maí og í C-deild Evrópukeppninnar 5. - 14. júlí.

Þá hefur Pétur Rúnar Birgisson verið valinn í æfingahóp U16 ára landsliðs drengja sem taka mun þátt í Norðurlandamótinu í Svíþjóð 16. - 20. maí.

Fleiri fréttir