Firmakeppni Léttfeta 2011
Firmakeppni Léttfeta verður haldin á félagssvæði Léttfeta, Fluguskeiði, á Sauðárkróki sunnudaginn 22. maí. Skráning í Tjarnarbæ milli kl. 13:00 – 13:30 en keppni hefst kl. 14:00. Keppt verður í: Barnaflokki (13 ára á árinu og yngri), Unglingaflokki (14 – 17 ára á árinu), Ungmennaflokki (18 -21 ára á árinu), Kvennaflokki og Karlaflokki.
Verðlaunaafhending og kaffiveitingar að lokinni keppni í Tjarnabæ.
Mótanefndin