Fisk Seafood styrkir fátæka til augnaðgerða í Nígeríu
Fisk Seafood á Sauðárkróki er á meðal íslenskra fiskafurðaframleiðenda sem eru þátttakendur í verkefninu MISSION FOR VISION í Calabar í Nígeríu. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa blindu og sjónskertu fólki sjónina á ný, sem annars hefur ekki ráð á slíkum aðgerðum.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá Sölku-Fiskmiðlun var því fagnað á dögunum að 22 þúsund augnaðgerðir hafa verið framkvæmdar í verkefninu en það hófst árið 2003. Þátttaka íslensku framleiðendanna byggist á því að þau gefa ýmist pakka af afurðum eða peninga til verkefnisins og dugir framlag þeirra fyrir 2000 augnaðgerðum árlega.
Í tilkynningunni segir um augnaðgerðirnar:
„Þiggendurnir byrja á að koma í skoðun en flestir eru með vagl eða gláku. Með einfaldri leysiaðgerð er þeim tryggð sjón í langflestum tilvikum. Aðgerðin sjálf tekur ekki nema rétt um 5 mínútur en sjúklingarnir þurfa að vera á spítalanum 3-5 daga og koma svo í eftirlit tvisvar eftir aðgerð. Allt ferlið er sjúklingnum að kostnaðarlausu. Starfsfólk spítalans er flest heimafólk en yfirstjórnin og læknirinn sem framkvæmir aðgerðirnar eru frá Indlandi.“
Áhrifarík stund
Sendinefnd frá Íslandi var viðstödd og varð vitni að því þegar fólk sem misst hafði sjónina sá veröldina á ný, að aðgerðinni lokinni. „Það var mjög áhrifaríkt að upplifa þessa stund, sjá gleðina í augum þessa fátæka fólks og finna einlægt þakklæti í okkar garð sem höfum staðið að þessu verkefni,“ sagði Katrín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Sölku-Fiskmiðlunar hf. á Dalvík.
Þau íslensku fyrirtæki sem komu að verkefninu með einum eða öðrum hætti eru:
Salka-Fiskmiðlun hf. Dalvík, Klofningur ehf. Suðureyri, Lýsi hf. þurrkun Þorlákshöfn, Samherji hf. Dalvík, Félagsbúið Miðhrauni, Laugafiskur hf. Akranesi, Faroe Marine Products Færeyjum, Norlandía ehf. Ólafsfirði, Fiskmark ehf. Þorlákshöfn, FISK Seafood Sauðárkróki, Þurrkaðar fiskafurðir ehf. Grindavík, GPG fiskverkun Húsavík, Haustak hf. Grindavík, Herðir Egilsstöðum, Flúðafiskur ehf. Flúðum, Langa ehf. Vestmannaeyjum og flutningafyrirtækin Eimskip og Samskip.