Fjallaskokk USVH
Fimmtudaginn 25. júlí verður gengið/skokkað/hlaupið frá Grund í Vesturhópi yfir Vatnsnesfjallið og endað ofan í Kirkjuhvammi á Hvammstanga. Þetta er um 12 km leið og hækkun á milli 400-500 metrar.
Um er að ræða keppni þar sem gildir að vera fyrstur yfir fjallið, en að sjálfsögðu getur hver og einn gert þetta eftir sínu höfði, keppt við aðra, sjálfan sig eða farið leiðina án þess að vera keppa yfirleitt. Aðalatriðið er að vera með og hafa ánægju af þessu.
Skipt er í aldursflokka, 15 ára og yngri, 16-49 ára og 50 ára og eldri. Allir fá viðurkenningu fyrir þátttöku. Einnig verða veittir verðlaunapeningar fyrir þrjú efstu sætin í hverjum aldursflokki fyrir sig. Ræst verður í tveimur flokkum, göngufólk og trimmarar/keppnismenn.
Fyrir göngufólk er mæting er í Kirkjuhvammi kl. 16:00 og lagt af stað með rútu kl. 16.15 og áætlaður komutími að Grund kl. 16.35. Ræst verður stundvíslega klukkan 16:45.
Fyrir trimmara og keppnisfólk er mæting er í Kirkjuhvammi kl. 17:00, lagt af stað með rútu kl. 17.15, áætlaður komutími að Grund kl. 17.35. Ræst er stundvíslega kl. 17:45.
Björgunarsveitin Húnar verður á staðnum og mun veita leiðsögn yfir fjallið og aðstoð ef þörf er á. Einnig er leiðin stikuð. Þátttakendum er bent á að hafa með sér góða skó, hlý föt og góða skapið!
Þátttaka tilkynnist á netfangið usvh@usvh.is eða til skrifstofu USVH í síma 865-2092. Nauðsynlegt er að fram komi nafn og í hvaða aldursflokk er verið að skrá. Þátttökugjald er kr. 1.500 sem hægt að greiða við upphaf hlaups. Ekki tekið við kortum.
Fréttatilkynning frá USVH