Fjallaskokk USVH - Myndir

Fjallaskokk USVH er árviss viðburður og hluti af hátíðinni Eldur í Húnaþingi. Skokkið fór fram seinnipartinn í gær og hafði sólin aldeilis brotist fram úr þokunni, því steikjandi hiti fylgdi þátttakendum, þrátt fyrir að einhverjir lentu í þoku á lokasprettinum.

Göngufólk fór með rútu frá Kirkjuhvammi að Grund í Vesturhópi kl 16 en trimmarar og keppnisfólk klukkutíma síðar. Farið var yfir Vatnsnesfjallið og endað í Kirkjuhvammi. Leiðin er 12 km löng, en nokkuð krefjandi á köflum þar sem landslag er þýft, bratt á köflum og talsvert um mýrar á leiðinni. Gangan er þó vel þess virði í fallegu umhverfi og ekki spillti veðrið.

Blaðamaður Feykis brá sér í gönguskóna og tók meðfylgjandi myndir í göngunni.

.

Fleiri fréttir