Fjárhagsáætlanir Svf. Skagafjarðar fyrir árin 2016-2019 samþykktar

Fjárhagsáætlanir Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árin 2016-2019 voru samþykktar samhljóða með atkvæðum allra sveitarstjórnarfulltrúa við síðari umræðu á fundi sveitarstjórnar í gær. Helstu fjárfestingar ársins verða vegna Sundlaugar Sauðárkróks, byggingar vatnstanks fyrir kalt vatn á Gránumóum, hitaveituframkvæmda í Fljótum, skjólgarðs við smábátahöfnina á Sauðárkróki og kaupa á slökkvibifreið.
Í fundargerð, sem lesa má í heild sinni hér, var eftirfarandi meðal annars bókað:
„Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2016 er lögð fram til seinni umræðu. Fjárhagsáætlunin sýnir rekstraráætlun, sjóðsstreymi og áætlaðan efnahagsreikning fyrir sveitarfélagið og stofnanir þess. Áætlun ársins gerir ráð fyrir að rekstrartekjur Sveitarfélagsins Skagafjarðar nemi 4.422 m.kr. hjá samstæðunni í heild, A- og B hluta, þar af eru rekstrartekjur A- hluta áætlaðar 3.801 m.kr.
Rekstrargjöld án fjármagnsliða eru áætluð 4.067 m.kr., þ.a. A hluti 3.680 m.kr. Rekstrarafgangur A og B hluta án afskrifta og fjármagnsliða er áætlaður 519 m.kr, afskriftir nema 164 m.kr. og fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur nema 302 m.kr., rekstrarniðurstaða samstæðunnar í heild A og B hluta er áætluð jákvæð samtals með 53 m.kr. í rekstrarafgang.
Rekstrarafgangur A hluta án afskrifta og fjármagnsliða er 220 m.kr, afskriftir nema 100 m.kr., fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur nema 221 m.kr. Rekstrarniðurstaða A hluta sveitarsjóðs er því áætluð neikvæð um 101 m.kr.“
Í kjölfar greinargerðar Ástu Pálmadóttur, með fjárhagsáætluninni, lögðu fulltrúar allra lista fram bókanir.
Leggja þarf áherslu á að leiðrétta tap A-hluta sveitarsjóðs
Í bókun Skagafjarðarlistans, sem lögð var fram af Grétu Sjöfn Guðmundsdóttur oddvita listans, segir m.a.: „Skagafjarðarlistinn leggur áherslu á framkvæmdir við sundlaug Sauðárkróks og lýsir ánægju með að það er gert ráð fyrir því í áætluninni. Skagafjarðarlistinn tekur undir viðhalds- og framkvæmdaáætlun þar sem m.a. kemur fram að betrumbæta á umhverfi við gámastöðvar, tryggja betur umferðaröryggi barna svo sem með umferðaljósum við Árskóla og göngustíg í Hofsósi, fjármagn áætlað til að undirbúa bætta íþróttaaðstöðu við grunnskólann á Hofsósi, nýjan kaldavatnstank á Sauðárkróki svo eitthvað sé nefnt.“
Í bókum Skagafjarðarlistans kemur einnig fram að ekki sé ásættanlegt að A-hluti sveitarsjóðs sýni tap til lengri tíma og leggja þurfi áherslu á að leiðrétta það á komandi árum. Þá segir að Skagafjarðarlistinn leggi áherslu á að áfram yrði haldið með vinnu við að færa starfsemi leikskólans Birkilundar undir sama þak og grunnskólann í Varmahlíð. Einnig er skorað á meirihlutann að hefja vinnu starfshóps til að vinna innkaupareglur fyrir sveitarfélagið og lögð áhersla á að farið verði í markvissa vinnu til að efla leigumarkað í Skagafirði. Lýst er yfir áhyggjum af tekjuforsendum sveitarfélagsins á komandi árum og áréttað mikilvægi þess að snúa við neikvæðri byggðaþróun, m.a. með öflugri kynningu á sveitarfélaginu Skagafirði.
Stefnumörkun hefur enn ekki verið kynnt
Í bókun Bjarna Jónssonar, fulltrúa vinstri grænna, segir m.a.: „Ljóst er af framlagðri fjárhagsáætlun ársins 2016, að aftur þarf að taka upp þráðinn varðandi bættan rekstur sveitarfélagsins og sparnaðaraðgerðir, því núverandi rekstrarhalli er óviðunandi. Á heildina litið er enn fylgt stefnumörkun meirihluta síðustu sveitarstjórnar sem kynnt var við upphaf kjörtímabilsins 2010-2014 m.a. um þjónustu, framkvæmdir og uppbyggingu innviða og er það vel. Nýr meirihlut sveitarstjórnar hefur hinsvegar ekki enn kynnt stefnumörkun sína fyrir sveitarfélagið eða sett fram heildstæða stefnu um forgangsverkefni og áherslur á yfirstandandi kjörtímabili.“
Í bókun Bjarna segir ennfremur að VG og óháðir leggi áherslu á að sveitarfélagið bjóði upp á góða og ódýra þjónustu við börn og barnafólk og standi því til að mynda ekki að þeim gjaldskrárhækkunum sem meirihlutinn leggi til á leikskólagjöldum og fæðisgjöldum í skólum.Þá er fagnað fyrirhuguðum framkvæmdum við sundlaug á Sauðárkróki, bótum á útivistarsvæði í Litla-Skógi, stígagerð, bættu umferðaröryggi við gönguleiðir barna og því að fara eigi yfir valkosti til að bæta íþróttaaðstöðu grunnskólabarna á Hofsósi.
Jákvæð rekstarniðurstaða fimmta árið í röð
Loks lagði Stefán Vagn Stefánsson fram bókun fyrir hönd fulltrúa Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Þar segir m.a.: „Það er ánægjulegt að leggja fram fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 sem gerir ráð fyrir rekstrarafgangi af samstæðureikningi sveitarsjóðs að upphæð 519 milljónir fyrir afskriftir og fjármagnsliði. Rekstrarafgangur samstæðunnar í heild A-og B hluta er áætluð samtals 53 milljónir. Ef áætlanir ganga eftir verður ári ð2016 fimmta árið í röð sem gert verður upp með jákvæðri rekstrarniðurstöðu hjá Sveitarfélaginu Skagafirði , en slíkur árangur hefur ekki áður náðst í sögu þess. Óhætt er að segja að ákveðinn stöðuleiki hafi náðst í reksturinn og ber að þakka það ábyrgri fjármálastjórn og aðhaldi í rekstri undanfarinna ára. Einnig ber að þakka starfsmönnum sveitarfélagsins en ljóst er að án samstillts átaks þeirra hefði sá árangur ekki náðst líkt og rekstur undanfarinna ára ber með sér sem og sú áætlun sem lögð er fram nú.“
Fram kemur í bókuninni að hækkanir launa á milli áætlana 2014 og 2016 séu rúmar 333 milljónir króna. Miðað sé við að gjaldskrárhækkanir séu ekki umfram verðlags- og kjarasamningshækkanir. Því sé ljóst að Svf. Skagafjörður verði áfram með einhver lægstu gjöld í leik- og grunnskólum landsins og að orkukostnaður verði áfram hvað lægstur á íbúa í Skagafirði. Stærsta fjárfestingaverkefni næsta árs verði framkvæmdir við Sundlaug Sauðárkróks. Þrátt fyrir ýmsir hefðu áhyggjur af því að sveitarsjóður myndi rjúfa það viðmiðað skuldahlutfall færi yfir 150% af tekjum geri fjárhagsáætlun ráð fyrir því skuldahlutfallið verði 137%.