Fjáröflun fyrir Gautaborgarför
Frjálsíþróttakrakkarnir úr Skagafirði, sem stefna á Gautaborgarleikana í sumar ætla að halda kökubasar í Skagfirðingabúð á morgun miðvikudaginn 1. júni kl 16:00. Stóra stundin nálgast þar sem leikarnir verða haldnir 8. til 10. júlí og enn vantar aur í ferðasjóðinn.
Krakkarnir sem stefna á utanför, eru á aldrinum 12 ára til 20 ára og hafa verið með ýmsar fjáraflanir í vetur. Hafa þeir skipulagt ýmsar uppákomur, kleinubakstra, kökubasara og bingókvöld ásamt öðru.