Fjögur verkefni á NLV hljóta styrki úr AVS sjóðnum

Biopol á Skagaströnd hlaut tvo styrki úr AVS sjóðnum í ár en alls komu fjórir styrkir á Norðurland vestra. Mynd: BÞ
Biopol á Skagaströnd hlaut tvo styrki úr AVS sjóðnum í ár en alls komu fjórir styrkir á Norðurland vestra. Mynd: BÞ

AVS sjóðurinn hefur lokið umfjöllun sinni vegna umsókna ársins og ákveðið hvaða verkefni hljóta styrki í ár. AVS er eins og kunnugt er skammstöfun fyrir „Aukið virði sjávarfangs“ og verkefni sem hljóta styrki hafa það að markmiði. Meðal styrkhafa eru fjögur verkefni á NLV.

Verkefnum er skipt í fjóra flokka, fiskeldi, líftækni, markaðsmál og veiðar&vinnslu. Faghópur sérfræðinga bæði úr rannsóknaumhverfinu og frá atvinnugreininni meta umsóknir í hverjum flokki. Hver umsókn er metin til einkunnar, sem að lokum ræður því hvort hún fær styrk eða ekki. Í ljósi þeirra fjárheimilda, sem sjóðurinn hefur yfir að ráða, þarf þó ávalt að hafna mörgum góðum verkefnum.

Í þetta sinn var ákveðið að styrkja 36 verkefni um rúmlega 240 milljónir króna. Þar af eru 23 ný verkefni og 13 framhaldsverkefni. Þau skiptast þannig að níu verkefni eru styrkt á sviði fiskeldis að upphæð 75 milljónir króna, sjö markaðsverkefni upp á 47 milljónir króna, sjö líftækniverkefni fá 49 milljónir króna og í hlut 14 verkefna í flokknum veiðar&vinnsla koma 70 milljónir króna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá sjóðnum.

Verkefnin fjögur á Norðurlandi vestra sem hlutu styrki eru eftirfarandi:

Kynbætur fyrir auknu þoli bleikju gegn kýlaveiki

Háskólinn á Hólum

Helgi Þór Thorarensen

8.000.000

Markaðssetning á fæðubótarefnum með þorskprótíni

Iceprotein ehf

Hólmfríður Sveinsdóttir

8.000.000

Optimising yield of antioxidants and sunscreens in Icelandic marine microalgae for sustainable biosynthesis of ingredients for cosmetic products

BioPol ehf

Bettina Scholz

8.000.00

Vorboðinn ljúfi

Sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf

Halldór Gunnar Ólafsson

5.000.000


Þetta er í fjórtánda skipti sem úthlutað er úr AVS sjóðnum og er óhætt að fullyrða að úthlutanir úr sjóðnum eru rannsóknaumhverfi sjávarútvegsins afar mikilvægar. Nánari upplýsingar um úthlutunina og styrkþega má sjá á heimasíðu sjóðsins www.avs.is.

 

 

Fleiri fréttir