Fjöldi fólks á skíðum

Yfir 120 manns mættu í Stólinn í dag og renndu sér á skíðum, brettum eða öðru rennanlegu en skíðadeild Tindastóls bauð öllum frítt í lyftuna í tilefni af Degi snjósins sem haldinn var hátíðlegur um víða veröld. Skíðafærið var gott en skyggnið hefði mátt vera betra.

Viggó Jónsson staðarhaldari skíðasvæðisins var ánægður með daginn og þótti honum vel hafa tekist til enda tilefnið gott. Hvetur hann fólk til að vera duglegt við að kíkja í Stólinn í vetur enda nægur snjór og færið eins og best verður á kosið.

http://www.youtube.com/watch?v=V-CVZjnnumw&feature=youtu.be

Fleiri fréttir