Fjölmenna á rúntinn í minningu Önnu Jónu
feykir.is
Skagafjörður
18.01.2014
kl. 14.47
Anna Jóna Sigurbjörnsdóttir, stúlkan sem lést í umferðarslysinu í Norðurárdal sl. sunnudag, hefði orðið 17 ára í dag og fengið bílpróf. Í tilefni af því ætla vinir hennar, skólafélagar og aðrir bæjarbúar að fjölmenna á bílastæðið við Skagfirðingabúð í kvöld kl 20:00 og fara á rúntinn.
Þetta ætla þau að gera til að minnast hennar „því það hefði hún sennilega gert sjálf, eins og flestir gera þegar þeir fá bílpróf“ segir í tilkynningu sem gengið hefur á netinu og eru þar allir hvattir til að taka þátt og láta þetta berast.