Fjölmennasti brautskráningarhópurinn úr ferðamáladeild

Brautskráning frá Háskólanum á Hólum vorið 2016 fór fram við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Miðgarði á föstudaginn var. Dagskráin var með hefðbundnum hætti og hófst með ávarpi rektors skólans, Erlu Bjarkar Örnólfsdóttur.

Í ár eru liðin 20 ár frá því að ferðamáladeild skólans tók til starfa, og flutti Guðrún Þóra Gunnarsdóttir stutt ávarp af því tilefni. Guðrún Þóra var ein af þeim sem unnu á sínum tíma að því að koma deildinni á fót og stýrði henni lengi vel. Hún lét þess getið að haustið 1996 hefðu sex nemendur innritast í deildina, en í vetur losuðu skráðir nemendur 130, auk gesta- og skiptinema frá öðrum skólum. Með haustinu má reikna með að ferðamáladeildin fagni afmælisárinu sérstaklega.

Deildarstjórarnir tóku síðan til máls, hver á eftir öðrum, og brautskráðu sína nemendur. Fyrstur sté í pontu Sveinn Ragnarsson, deildarstjóri hestafræðideildar. Hann brautskráði alls 13 manns með BS-próf í reiðmennsku og reiðkennslu. Því miður gat hann þó einungis afhent sjö skírteini því um helmingur nemanna var fjarri góðu gamni, upptekinn við kynbótasýningar og annað sem tengist þessum árstíma þegar hestamennskan er annars vegar. Þess má einnig geta að allur BS-hópurinn tók þátt í reiðsýning hinn 21. maí.

Hefð er fyrir því að veita sérstaka viðurkenningu fyrir besta heildarárangur í BS-náminu. Að þessu sinni stóðu þrír nemendur hnífjafnir og frekar en að láta reyna á þriðja aukastaf var ákveðið að heiðra þá alla jafnt. Þetta voru þau Óskar Örn Hróbjartsson, Sara Rut Heimisdóttir og Tonhild Skaare Tveiten. 

Bjarni Kristófer Kristjánsson, deildarstjóri fiskeldis- og fiskalíffræðideildar, brautskráði tvo nema með diplómu í fiskeldisfræði, og aðra tvo með meistarapróf í sjávar- og vatnalíffræði. Þess ber að geta að allnokkur hópur fiskeldisnema er nú í verknámi og eðli námsins samkvæmt er algengast að fiskeldisnemar séu brautskráðir í október.

Fjölmennasti brautskráningarhópurinn var úr ferðamáladeild. Laufey Haraldsdóttir deildarstjóri kallaði alls fram 22 nema til að taka við diplómu í viðburðastjórnun og 24 skírteini um lærdómstitilinn Baccalaureus Artium í ferðamálafræði voru í bunkanum. Að lokum brautskráði hún tvo með MA í ferðamálafræði.

Sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í ferðamáladeild hlutu þær Anna Karen Úlfarsdóttir (diplóma í viðburðastjórnun) og Guðbjörg Linda Udengard (BA í ferðamálafræði).

Sara Rut Heimisdóttir, BS í reiðmennsku og reiðkennslu, ávarpaði viðstadda fyrir hönd brautskráningarhópsins. Síðust á mælendaskrá var Hrafndís Bára Einarsdóttir, nýbrautskráð með diplómu í viðburðastjórnun. Hún tók til máls undir yfirskriftinni „Af hverju ertu svona löt“ – háskólanám og andleg veikindi.

Um tónlistarflutning sáu þau Guðrún Jónsdóttir og Stefán R. Gíslason. Athöfninni stjórnaði Helgi Þór Thorarensen. Að henni lokinni bauð Háskólinn á Hólum öllum viðstöddum til kaffisamsætis, í umsjón Ferðaþjónustunnar á Hólum.

Þess má að lokum geta að föstudaginn 3. júní sl. brautskráðist einn nemandi með BS í hestafræði, af sameiginlegri námsbraut Háskólans á Hólum og Landbúnaðarháskóla Íslands.

Fleiri fréttir