Fjölmennt jólamót Molduxa

Hið árlega Molduxamót í körfubolta fór fram í gær í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Mótið þykir ómissandi þáttur í jólahaldi Skagfirðinga bæði heimamanna sem og brottfluttra sem koma og taka á því gegn gömlu félögunum. Mótið var hið fjölmennasta til margra ára en alls voru 18 lið skráð til leiks í þremur flokkum, opnum, +40 og kvennaflokki.

 

Í opna flokknum sigraði lið ungra drengja sem kölluðu sig Black Mamba, í +40 sigruðu Dvergar og svo fór að liðin þrjú í kvennaflokknum voru jöfn að stigum og deildu því fyrsta sætinu.

Öll innkoma mótsins rennur óskipt til körfuknattleiksdeildar Tindastóls sem að þessu sinni nam 211 þúsundum króna.  Alfreð Guðmundsson mótsstjóri var ánægður með mótið og vildi koma þökkum til allra þeirra sem tóku þátt og styrktu gott málefni.

.

Fleiri fréttir