Fjölnir hirti öll stigin
Það var leikinn hörku fótbolti í gærkvöldi þegar Fjölnisstúlkur úr Grafarvoginum heimsóttu stöllur sínar í Tindastól á Sauðárkróksvelli. Þó að gestirnir væru með betri stöðu á stigatöflunni var auðséð strax í upphafi að Tindastóll ætlaði sér öll stigin í leiknum.
Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu á báða bóga og marktækifærin lágu í loftinu og liðin virtust áþekk inni á vellinum. Það var svo á 70. mínútu sem lítil hætta virtist vera fyrir framan Tindastólsmarkið að Helena Ólafsdóttir leikmaður Fjölnis skaut háum bolta að marki en Tóta markmaður Tindastóls náði ekki að kýla hann frá svo hann hafnaði í markinu. Fjölnisstúlkur fögnuðu ákaft en svekkelsið mikið fyrir heimamenn sem ekki áttu skilið að tapa leiknum.
Það hefur verið góður stígandi í Tindastólsliðinu í síðustu tveimur leikjum, aukið spil innan liðsins og meira sjálfstraust virðist komið í leikmenn og hefði verið gaman að sjá þessa baráttu og áræðni strax í vor en liðið hefur saknað nokkurra lykilmanna sem eru meiddar eða ekki með af öðrum orsökum.
Byrjunarlið Tindastóls:
- Sigurbjörg Þ Marteinsdóttir
- Sunna Björk Atladóttir
- Harpa Sif Jónsdóttir
- Guðný Þóra Guðnadóttir
- Fríða Rún Jónsdóttir
- Svava Rún Ingimarsdóttir
- Rakel Svala Gísladóttir
- Laufey Rún Harðardóttir
- Þóra Rut Jónsdóttir
- Thelma Lind Jónsdóttir
- Bryndís Rún Baldursdóttir
Varamenn:
- Snæbjört Pálsdóttir
- Margrét Alda Magnúsdóttir
- Elísabet Haraldsdóttir
- Erla Björt Björnsdóttir
- Brynhildur Ósk Ólafsdóttir