Fjölsótt ráðstefna um upplýsingatækni í skólastarfi

Vinnu- og menntabúðir um upplýsingatækni í skólastarfi fóru fram á Sauðárkróki dagana 6. og 7. nóvember. Þetta var í fyrsta sinn sem slík ráðstefna var haldin hérlendis og tókst afar vel til að mati skipuleggjendanna Ingva Hrannars Ómarssonar, sérfræðingi í skólaþróun og kennsluráðgjafi í upplýsinga- og tæknimálum í Svf. Skagafirði, og Margrétar Bjarkar Arnardóttur, náms- og starfsráðgjafa við Árskóla á Sauðárkróki.
Ingvi Hrannar segir hugmyndina hafa kviknað á síðasta ári en mikil þörf hefur verið á umræðuvettvangi um upplýsingatækni í skólastarfi.
„Það er svo mikil gróska í upplýsingatækninni og í skólastarfi, svo er upplýsingatækni eitt og upplýsingatækni í skólastarfi í raun allt annað. Það eru til fullt af tækjum og tólum en hvernig notum við þau í skólastarfi og hvernig nýtist það – það er stóra spurningin. Til hvers erum við að nota þetta og af hverju notum við þetta en ekki hitt?“ útskýrir Ingvi Hrannar. Hann segir að þessi umræða hafi að mestu farið fram í netheimum fram til þessa, til dæmis í umræðuhópum á Twitter, s.s. Menntaspjalli, og líka í ýmsum Facebook-hópum en það vantaði einhvern stað fyrir fólk til þess að koma saman og ræða þessi atriði.
Á ráðstefnuna komu oddarnir í skólaþróun á upplýsingatækni en Ingvi Hrannar segir færri hafa komist að en vildu, vegna skorts á gistirými á Sauðárkróki, 63 komu á ráðstefnuna og 40 voru á biðlista.
„Eins og staðan er í dag erum við farin að huga að UTís 2016. Það er von okkar að þetta verði árlegur viðburður í Skagafirði og sniðið með svipuðum hætti,“ segir Margrét.
Nánar er fjallað um ráðstefnuna í Feyki vikunnar.