Fjórtán refir í einu greni
Refaskyttan í Viðvíkursveit vann við annan mann greni í vikunni þar sem heimilisfaðirinn hafði haft tvær læður í takinu. Önnur læðan hafði gotið mun fyrr en hin og átti hún sex hvolpa. Hin læðan átti fimm mun yngri hvolpa. Tókst að fella allan hópinn sem taldi þrjú fullorðin dýr og ellefu hvolpa.
Mjög fágætt er að sami refurinn búi með tveimur læðum og báðar komi upp hvolpum. Þegar tvær læður eru á sama greni er talið líklegt að um mæðgur sé að ræða, hvort hvolparnir séu samfeðra er ekki ljóst. Þekktara er að læða refsins hafi með sér ,,húshjálp“ í formi árs gamallar dóttur sinnar sem ber æti í yngri systkini sín og hjálpar móður sinni við heimilisstörfin, en í þetta skipti gæti húshjálpin hafa gotið líka. Annað greni var unnið í Viðvíkursveit í fyrri viku og voru þar felld refur og læða með sjö hvolpa. Á þessum tveimur grenjum voru því alls átján hvolpar sem verður að teljast mikil frjósemi.
Texti og mynd; Kári Gunnarsson