Fléttar landið og sveitina saman við nútímatilveru

Skagfirska ljóðskáldið Eyþór Árnason var að gefa út aðra bók sína, Svo ég komi aftur að ágústmyrkrinu, en fyrri bókin hans, Hundgá úr annarri sveit, vann til bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar árið 2009. 

Eyþór vitjar upprunans í ljóðum sínum en hann er uppalinn á Uppsölum í Blönduhlíð. Hann fléttar landið og sveitina saman við nútímatilveru á skemmtilegan og hugmyndaríkan hátt, eins og segir í umsögn dómnefndar Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar.

Í ljóðum Eyþórs er oftast stutt í húmorinn. Þar má greina margar andstæður svo sem borgina andspænis sveitinni, kvikmyndaleikara eða söngvara (t.d. Clint Eastwood eða Tom Waits) á móti köppum úr Íslendingasögunum, gjarnan úr Sturlungu eða þá Akrahreppi.

Eyþór heimsótti æskuslóðir í síðustu viku og var með ljóðalestur í Héðinsminni í Akrahreppi síðastliðinn föstudag og mættu þar margir sveitungar að hlýða á yrkisefni hans. Ítarlegt viðtal við Eyþór má lesa í nýjasta eintaki Feykis.

Fleiri fréttir