Fljúgandi hálka – förum varlega!

Það er sunnanstrekkingur í Skagafirði og rétt að vara vegfarendur, bæði akandi og gangandi, við því að það er fljúgandi hálka og vissara að fara varlega.

Ekki bætir vindurinn úr skák og lá við að stuðningsmenn Tindastóls þyrftu að synda eða skríða að bílum sínum eftir leikinn í Síkinu í kvöld.

Í kvöld, nótt og á morgun er spáð 5-10 stiga hita og sunnanátt en svo er reiknað með að það kólni annnað kvöld.

Fleiri fréttir