Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð 40 ára
Um þessar mundir fagnar Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð 40 ára starfsemi sinni en hún var stofnuð 17. október árið 1971. Af þessu tilefni verður opið hús hjá sveitinni milli kl 14-16 laugardaginn 3. des. og öllum boðið að kíkja í heimsókn og gleðjast með þeim.
Á vef Landsbjargar segir að á félagaskrá Flugbjörgunarsveitarinnar eru 71 félagi, þar af 30 á útkallsskrá, starfssvæði sveitarinnar er framhluti Skagafjarðar sem og hálendið inn að Hofsjökli, en raunar má segja að allt landið liggi undir ef útköll verða erfið og mannskapsfrek því eins og dæmi sýna fóru félagar nýverið suður á land til leitar að útlending sem villtist á Sólheimajökli.
Félagsstarf sveitarinnar er með miklum ágætum, fundir og æfingar haldnar vikulega yfir vetramánuðina auk námskeiða hjá Björgunarskólanum sem og annarra samæfinga björgunarsveita í Skagafirði. Allt frá stofnun sveitarinnar hefur starfið einkennst að nokkru leiti við ferðir og útköll til fjalla en sveitin hefur frá stofnun haft vélsleða og öfluga jeppa í tækjahópnum til að takast á við þær erfiðu aðstæður sem skapast á hálendi Íslands þar sem veður eru válynd. Björgunarsveitin hefur kappkostað að sækja námskeið hjá Björgunarskólanum.
Allir sveitarmeðlimir þurfa að hafa góða þekkingu á fyrstu hjálp að auki hafa allmargir sérhæft sig í klettaklifri, en sveitin er í viðbragðsáætlun vegna flúðasiglinga á austari og vestari Jökulsá í Skagafirði, nokkrir sveitarmeðlimir hafa verið leiðsögumenn í þessum siglingum og hafa mikla þekkingu á því sviði. Þá eru nokkrir úr sveitinni starfandi í hjá Brunavörnum Skagafjarðar.