Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð 40 ára

Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð hélt upp á 40 ára afmælið sitt sl. laugardag. Við tilefnið var sveitin með opið hús og bauð gestum upp á kaffi og meðlæti.

 

Í afmælisfögnuðinn mættu um 80 manns björgunarsveitarmönnum til mikillar gleði en „voru sveitarmenn búnir að þrífa allt hátt og lágt ásamt því að stilla upp tækjum og tólum sveitarinnar,“ eins og segir á heimasíðu Flugbjörgunarsveitarinnar.

Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð var stofnuð þann 17. október árið 1971. Starfssvæði sveitarinnar er framhluti Skagafjarðar sem og hálendið inn að Hofsjökli, en björgunarsveitin sinnir einnig störfum um land allt ef útköll verða erfið og mannskapsfrek, t.d. fóru félagar nýverið suður á land til leitar að erlendum ferðamanni sem villtist á Sólheimajökli.

Á félagaskrá Flugbjörgunarsveitarinnar eru 71 félagi, þar af 30 á útkallsskrá. Björgunarsveitin heldur æfingar vikulega yfir vetramánuðina auk námskeiða hjá björgunarskólanum, sem og annarra samæfinga björgunarsveita í Skagafirði.

Verkefni sveitarinnar eru fjölbreytt en allir sveitarmeðlimir hafa góða þekkingu á fyrstu hjálp, þar að auki hafa allmargir sérhæft sig í klettaklifri. Sveitin er í viðbragðsáætlun vegna flúðasiglinga á austari og vestari Jökulsá í Skagafirði en nokkrir sveitarmeðlimir hafa verið leiðsögumenn í þessum siglingum og hafa mikla þekkingu á því sviði. Þá eru nokkrir úr sveitinni starfandi í hjá Brunavörnum Skagafjarðar.

 

  • Heimildir:
  • fbsv.123.is
  • landsbjorg.is

 

 

Fleiri fréttir