Flugeldar og áramót
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
28.12.2012
kl. 12.02
Flugeldamarkaður Björgunarsveitarinnar Húna verður opin á eftirtöldum dögum milli jóla og nýárs í Húnabúð á Hvammstanga.
- Föstudaginn 28.desember 14-17
- Laugardaginn 29.desember 13-18
- Sunnudaginn 30.desember 10-22
- Gamlársdag 31.desember 9-15:30
Kveikt verður í áramótabrennunni við Höfða kl 21:00 á Gamlárskvöld og þar á eftir verður flugeldasýning í boði fyrirtækja í Húnaþingi vestra. Hvetjum alla til að mæta á brennuna og eiga góða stund saman, segir í tilkynningu frá Húnum.