Föndurhornið - fiðrildi
Hefur þú gaman að því að föndra? Hefur þú prófað að gera svona fiðrildi?
Það eina sem þú þarft er litaður pappír í stærðinni 15*15cm og skæri.
Nýprent er að selja 10 stk af lituðum A4 blöðum á 100kr (þú kemur og velur úr því sem er í boði hjá okkur)
Fleiri fréttir
-
Dreymdi um að vera Tico Torres / VALUR FREYR
Það er bara þannig að nýi slökkviliðsstjórinn á Hvammstanga er Hvanndalsbróðir. Við erum sem sagt að tala um Val Frey Halldórsson (árgangur 1974) trommara og söngvara. Hann gengst við því að vera hreinræktaður Akureyringur. „Alinn upp á Brekkunni og síðar Þorpari, stundum KA maður en lang oftast Þórsari. Heimasætan í Lækjarhvammi dró mig á hvítum skóm í sveitina – er enn í hvítum skóm.“ Nú býr Valur á Hvammstanga.Meira -
Ostapasta og hvítlauksbrauð
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Í matinn er þetta helst, Lokað efni 28.04.2024 kl. 13.00 siggag@nyprent.isMatgæðingar vikunnar í tbl 23, 2023, voru þau Saga Sjöfn Ragnarsdóttir og Sigurður Birkir Gunnarsson. Þau eru bæði fædd á Sauðárkróki og búa þar með dætrum sínum, Bríeti Sunnu (4 ára) og Heklu Björt (1 ½ árs) ásamt kettinum T-800. Saga flutti með mömmu sinni, Evu Árna, til Vestmannaeyja árið 2000 en kom aftur á Krókinn 2007 og hefur sama og ekkert yfirgefið bæinn síðan. Siggi, sem hefur alltaf búið á Króknum að frátöldum tveim vetrum í háskólanum fyrir sunnan, bauð skvís í partý og hafa þau eytt flestum sínum dögum saman síðan 2013.Meira -
Níu stigu á svið á Open Mic kvöldi Leikfélags Blönduóss
Að kvöldi sumardagsins fyrsta stóð Leikfélag Blönduóss fyrir viðburði í fallega leikhúsinu sínu í Félagsheimilinu á Blönduósi. Þar var um að ræða svokallað Open Mic og var öllum velkomið að taka þátt; flytja ljóð, segja skemmtilega sögu, syngja lag, fara með einræðu eða upplestur fyrir framan áhorfendur. Feykir spurði Eva Guðbjartsdóttur, forynju LB, aðeins út í viðburðinn.Meira -
Ágæt frammistaða en engin stig til Stólastúlkna
Breiðablik og Tindastóll mættust í dag á Kópavogsvelli í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Blikar unnu góðan sigur í fyrstu umferð á meðan Stólastúlkur máttu sætta sig við svekkjandi tap fyrir FH í leik þar sem þær áttu meira skilið. Eins og reikna mátti með í dag voru heimastúlkur talsvert sterkari í leiknum, fengu mörg færi til að skora en lið Tindastóls fékk sömuleiðis góð færi en fór illa að ráði sínu. Lokatölur urðu 3-0 fyrir Breiðablik og lið Tindastóls því án stiga og marka að loknum tveimur leikjum.Meira -
Lið Aþenu gerði Stólastúlkum grikk
Einvígi Aþenu og Tindastóls um sæti í Subway-deild kvenna næsta haust hófst í Austurbergi í Breiðholti í gærkvöldi. Lið Tindastóls hafði lagt Subway-deildar lið Snæfells að velli og Aþenu-stúlkur lið KR í undanúrslitum og því búist við spennandi einvígi. Niðurstaðan varð hinsvegar leiðinlega stór sigur Aþenu því eftir ágæta byrjun gestanna tók Breiðholtsliðið öll völd, var 15 stigum yfir í hálfleik og svo versnaði bara vont. Lokatölur 80-45 og ljóst að Stólastúlkur þurfa að sýna annað andlit í Síkinu á mánudaginn.Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.