Forn grafreitur á Óslandi
Forn grafreitur fannst við fornleifarannsóknir á Óslandi í Óslandshlíð. Þar voru fornleifafræðingar Byggðasafns Skagfirðinga á ferðinni, við hina svokölluðu Skagfirsku kirkjurannsókn.
Við fornleifauppgröftinn fundust átta til tíu grafir saman á litlu svæði, sem bendir til að þétt hafi verið grafið í garðinn. Ein gröfin var opnuð og var þar komið niður á bein barns sem hefur verið um 5 - 6 ára þegar það lést.
Elstu heimildir um kirkju á Óslandi eru frá árinu 1591 og samkvæmt ritheimildum virðist kirkjuhald hafa verið þar fram til um 1690. Leifar hringlaga kirkjugarðs og kirkjutóftar innan hans, voru sýnileg fram yfir miðja síðustu öld en ummerki þeirra hurfu að mestu við jarðrækt.
Helstu niðurstöður fornleifarannsóknarinnar eru þær að þar sem grafir fundust undir óhreyfðu gjóskulagi úr Heklu frá 1104 er ljóst að kirkjugarðurinn hefur verið í notkun þegar á 11. öld. Bætti þessi rannsókn því 500 árum framan við þekkta sögu kirkjuhalds á Óslandi.
Hægt er að sjá nánari upplýsingar um rannsóknina á heimasíðu Byggðasafns Skagfirðinga.