Frábær berjaspretta í Fljótum

„Hún er bara hreint út sagt frábær,“ segir Trausti Sveinsson ferðaþjónustubóndi á Bjarnargili í Fljótum aðspurður um berjasprettuna þar í sveit. Trausti tíndi ber í eftirrétt fyrir gesti sína síðustu helgina í júlí og segir þau síst hafa verið smærri en undanfarin ár, enda sé snjórinn sem var í vetur berjunum raunar hagstæður.

Trausti kíkti til berja í gær og hafði þá ekki farið í hálfan mánuð. Hann segir allt vera svart af krækiberjum en mjög lítið hafi verið af þeim í fyrra. „Og bláberin eru alveg upp í Fanndalakletta sem ég hef aldrei séð áður,“ segir Trausti. „Síðasti snjórinn innan girðingar er að hverfa núna í dag, 16. ágúst. Ég á ekki von á að snjórinn fari alveg úr fjöllum, það þarf þá að vera mjög hlýtt fram í október, nóvember."

Trausti segir bláberin í ár vera stór, safarík og falleg. „Hér er gríðarlega mikið af grænjaxlabreiðum og ef þau ná að stækka og þroskast verða þau orðin stór og fín um mánaðarmótin, segir Trausti en bætir því við að nú þegar sé vel hægt að handtína bláberin, það séu fín ber inn á milli.

Trausti rekur ásamt konu sinni Sigurbjörgu Bjarnadóttur ferðaþjónustu á Bjarnargili. Hann segir algengt að fólki komi í fjölskylduferðir þar sem gönguferðum og berjatínslu sé tvinnað saman. Í fyrra kom t.a.m. stór hópur að Bjarnargili þar sem voru á ferðinni fjölskyldur menntaskólavina sem höfðu haldið vinskap í gegnum tíðina og naut þess að koma út á land og eyða tímanum út í náttúru með börnunum. Hægt er að panta berjaferðir á heimasíðu og fésbókarsíðu Bjarnargils.

Trausti segir snjóþunga vetur og góða berjasprettu hafa farið saman í gegnum tíðina. Samspil mikillar sólar og þurrka setji hins vegar strik í reikninginn og það að viðbættum hlýindum í apríl og maí geri það að verkum að lyngið eyðileggist af völdum þurrka og birkifeta, líkt og raunin var fyrir fáeinum árum. „Nú er hins vegar búið að laufgast grænt og fallegt nýtt lyng sem er hefur jafnað sig eftir þær skemmdir. Í fyrra spruttu engin ber nema móti norðaustri,“ segir Trausti.

Sjálfur er Trausti öflugur við berjatínslu og týndi t.a.m. 450 lítra í fyrra sem hann seldur suður. Hann segist mest hafa komist í að tína 110 lítra á einum degi. Trausti segist þú þurfa að huga að því að selja berin beint frá býli, enda sé tínslan og hreinsunin tímafrek og mest sé að hafa út úr milliliðalausri sölu.

Fleiri fréttir