Frábær ræktunarbúasýning
Í gærkvöldi var sýning ræktunarbúa á Vindheimamelunum eins þær gerast bestar og var mikil stemning í áhorfendabrekkunni sem var þétt setin vel stemmdum áhorfendum sem gátu valið sitt uppáhaldsbú með símakosningu. Það bú sem flest atkvæði hlýtur í símakosningunni mætir svo aftur í kvöld og verður heiðrað sérstaklega á kvöldvökunni.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá sýningunni en eins og sjá má voru margir glæstir gæðingar sem glöddu augu landsmótsgesta.
.