Frábær sigur á Þorlákshöfnurum í Powerade-bikarnum

Tindastóll bar sigurorð af liði Þórs frá Þorlákshöfn í Síkinu í kvöld. Gestirnir höfðu lengstum forystu í leiknum en Stólarnir voru sterkari í lokafjórðungnum og Maurice Miller innsiglaði sigurinn með tveimur vítum undir lok leiks. Lokatölur 78-76 og heimamenn því komnir í 8 liða úrslitin í Powerade-bikarnum.

Þórsarar voru skrefinu á undan í fyrsta leikhluta og höfðu fimm stiga forystu að honum loknum, 15-20. Búbbarnir voru snöggir að jafna í byrjun annars leikhluta en áfram voru það gestirnir sem höfðu frumkvæðið og náðu muninum í mest 7 stig skömmu fyrir hlé en Miller setti niður víti áður en fyrri hálfleikur var úti og staðan 36-42.

Bretinn Luttman gerði fyrstu stigin í þriðja leikhluta en Þórsarar gáfu ekkert eftir, Hairston setti niður tvær 3ja stiga körfur á stuttum tíma og jók muninn í 8 stig. Hart var barist og Stólarnir reyndu að klóra í bakkann en gestirnir enduðu þriðja leikhluta sterkt, komust í 49-59 en Miller setti 2 stig áður en leikhlutinn var úti. Svabbi setti niður þrist í byrjun fjórða leikhluta og Miller og Hreinsi settu niður sitthvort vítasettið og munurinn kominn í 1 stig. Næstu 7 stig gerðu hinsvegar gestirnir og síðan tók við 3ja mínútna kafli þar sem liðunum gekk ekkert að skora. Curtis Allen braut ísinn fyrir heimamenn sem minnkuðu síðan muninn í 3 stig, 63-66.

Gestirnir bættu við tveimur stigum en svo kom þáttur Hreinsa Birgis, hann setti niður tvö 3ja stiga skot með stuttu millibili og kom Stólunum yfir í fyrsta skipti síðan snemma í öðrum leikhluta. Nú voru um þrjár mínútur eftir af leiknum og staðan 69-68 og í framhaldinu  skiptust liðin á um að hafa forystuna. Þröstur Leó setti síðan niður þrist og kom heimamönnum í 74-72 og svo bætti Miller við tveimur vítum. Þórsarar gáfust ekki upp og náðu að jafna 76-76 en Miller setti niður tvö víti til viðbótar og tryggði heimamönnum sætan sigur, 78-76.

Stig Tindastóls: Miller 22, Svabbi 12, Allen 12/11 fráköst, Luttman 8, Hreinsi 8, Rikki 6, Þröstur 5, Helgi Freyr 3 og Helgi Rafn 2/9 fráköst.

Fleiri fréttir