Frábært framtak hjá áhöfn Málmeyjarinnar

Áhöfn frystitogararans Málmey SK-1 var með söfnunarátak í gangi síðastliðna tvo túra, fyrir Magnús Jóhannesson sem er bundinn við hjólastól eftir alvarlegt vinnuslys í júní.

Gekk það átak vonum framar og tóku 44 meðlimir áhafnarinnar þátt í söfnuninni, að sögn Björgvins Jónssonar. Alls söfnuðust 655 þúsund krónur sem þeir afhentu Magga og fjölskyldu hans á fimmtudaginn 28. júlí síðastliðinn.

Þeir sem vilja styðja fjölskylduna er bent á söfnunarreikning; 0161-15-550279 kt: 110468-3429.

Fleiri fréttir