Fræðsla um krabbamein karla
Í tilefni af mottumars munu Kiwanisklúbburinn Drangey og Krabbameinsfélag Skagafjarðar standa fyrir Fræðsluráðstefnu á hátíðarsal FNV þriðjudaginn 18. mars kl 20. Í tilkynningu frá stjórnum félaganna eru allir boðnir velkomnir á ráðstefnuna og hvattir til að leggja málefninu lið og fræðast um krabbamein karla.
Félagar úr Karlakórnum Heimi munu opna ráðstefnuna með laginu „Hraustir menn.“ Valur Þór Marteinsson þvagfæraskurðlæknir flytur fyrirlestur um blöðruhálskirtilskrabbamein og svarar fyrirspurnum. Kórinn mun svo flytja nokkur lög í lokin.
Félagar úr frjálsíþrótta- og sunddeild Tindastóls munu selja skeggnælur í Skagfirðingabúð og KS Varmahlíð 14. og 15. mars á meðan birgðir endast.