Fræðslunefnd ítrekar mikilvægi þess að hraða framkvæmdum við nýja deild Birkilundar
Á fundi fræðslunefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 2. febrúar 2016 ítrekaði nefndin fyrri bókanir sínar um mikilvægi þess að framkvæmdum við nýja deild leikskólans Birkilundar verði hraðað svo sem verða má. Lýsti nefndin jafnframt áhyggjum af því hve verkið hefur dregist.
Feykir greindi frá því í frétt hér á vefnum 16. október að Byggðaráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefði á fundi sínum daginn áður samþykkt að fela sveitarstjóra að ganga frá leigusamningi við Kaupfélag Skagfirðinga um leigu á húsnæðinu sem áður hýsti pósthúsið í Varmahlíð. Var þessi ákvörðun tekin í kjölfar fjölmenns íbúafundar um málið, sem haldinn var í Varmahlíð fáeinum dögum áður.