Framarar mörðu jafntefli á Króknum

Stelpurnar í Tindastóli þurftu að sætta sig við jafntefli við Framstúlkur í gær þegar fyrsti heimaleikur meistaraflokks fór fram á Sauðárkróki þetta tímabilið. Leikurinn fór fram í norðangjólu á æfingavellinum en undanþága hafði verið gefin fyrir að leika á honum. Tindastólll hafði yfir í hálfleik 1-0.

Það var mikill hugur í heimastúlkum í leiknum og þær ákveðna að vinna leikinn og sýndu  mikla baráttu og ágætis spil á köflum. Það vantaði þó örlítið upp á að hægt væri að segja að Tindastóll stjórnaði leiknum en hver veit hvað hefði gerst ef Leslie Briggs hefði verið inn á en hin geysi sterka bandsaríska stúlka þurfti að hvíla vegna meiðsla. Tindastóll átti mörg fín færi í leiknum enþað var Bryndís Rún Baldursdóttir sem skoraði fyrsta mark leiksins fyrir heimastúlkur á 35. mínútu. Ekki voru fleiri mörk skoruð í fyrri hálfleik og staðan því 1-0 fyrir Tindastól.

Sama barátta hélst í seinni hálfleik og liðin skiptust á að sækja og þó að heimastúlkur virtust sterkari allan tímann náðu gestirnir að setja boltann í netið þegar Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir skoraði af miklu harðfylgi á 63. mínútu. Staðan orðin jöfn 1-1 og hélst hún til leiksloka.

Sjá leikskýrslu HÉR

Eftir fjóra leiki hafa Stólastúlkur tvö stig eftir tvö jafntefli og verma neðsta sæti riðilsins með lakara markahlutfall en Víkingur Ólafsvík sem einnig hefur tvö stig.

Næsti leikur stelpnanna verður föstudaginn 21. júní er þær heimsækja Hauka á Schenkervöllinn í Hafnarfirði.

.

Fleiri fréttir