Framkvæmdir á lóð Grunnskóla Húnaþings vestra

Framkvæmdir hafa staðið yfir á lóð Grunnskóla Húnaþings vestra á Hvammstanga undanfarið en sveitarstjórn Húnaþings vestra lagði til fjármagn í verkefnið við síðustu fjárhagsáætlun. Frá þessu segir á Norðanátt.is.

Það eru verktakar ásamt starfsmönnum áhaldahúss sem hafa unnið við verkið og að sögn Ínu Bjarkar Ársælsdóttur, umhverfisstjóra, er það mál manna að vel hafi tekist til við framkvæmdirnar. Sá hluti lóðarinnar sem hönnunin nær yfir er vel á veg kominn.

Steyptar hafa verið tröppur frá Kirkjuvegi niður á skólalóðina og því nýtast bílastæði við kirkjuna einnig betur fyrir skólann. Þá var hellulagt fyrir sunnan skólann og nýjum leiktækjum komið fyrir þar. Ungmennaráð Húnaþings vestra tók þátt í kostnaði á leiktækjunum og kom að ákvarðanatöku um hvaða tæki yrðu valin.

Núna stendur yfir grjóthleðsla í brekkunni austan við skólann m.a. til að halda við jarðveginn þar.

Meðfylgjandi mynd tók vefstjóri Norðanáttar sl. föstudag.

Fleiri fréttir