Framkvæmdir gengið vonum framar

Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki síðastliðnar vikur. Þar er verið að skipta um gólfefni, mála búningsherbergi og lagfæra sitthvað í sturtuklefum.

Á heimasíðu Tindastóls kemur fram að margir hafi lagt lóð á vogaskálarnar við framkvæmdirnar í íþróttahúsinu. Körfuknattleiksdeildin sá um að rífa gamla dúkinn upp af gólfinu og hreinsa það fyrir parketlögn. Skömmu síðar hófu verktakar að leggja parketið og hefur sú vinna gengið vonum framar. Eftir að þeirri framkvæmd lýkur þarf að hækka körfurnar þar sem gólfið verður 4 sm hærra en gamla gólfið, en körfurnar eiga að vera í 305 sm hæð.

Vonast er til þess að húsið verði klárt í byrjun næstu viku, a.m.k. salurinn, ef allt gengur að óskum. Verið er að skipuleggja vígsluleiki í tilefni opnun íþróttahússins.

Hér er hægt að lesa nánar um framkvæmdirnar.

Fleiri fréttir