Framlengdur frestur til skráningar í Vetrar Tím

Ákveðið hefur verið að framlengja frest til að skrá börn sín í Vetrar Tím og verður ekki lokað fyrir skráningu fyrr en miðvikudaginn 2. nóvember. Var þetta gert að ósk frá íþróttafélögunum og eru foreldrar barna sem stunda íþróttir hjá Tindastóli á haustönn hvattir til að ljúka skráningunni sem allra fyrst, svo hægt sé að senda út rukkun.

Fram kemur á heimsíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar að T.Í.M. kerfið býður foreldrum einnig betri yfirsýn yfir hvað er í boði hjá frístundarsviði sveitarfélagsins en kerfið heldur einnig utan um hverjir eiga rétt á svokölluðum Hvatapeningum. UMSS hefur óskað eftir því að öll börn yngri en 18 ára sem æfa og þjálfa hjá aðildarfélögum þess verði skráð í T.Í.M. kerfið, til þess að auðvelda foreldrum, þjálfurum, íþróttadeildum og félögum að halda utan um iðkendaskrána.

T.Í.M.kerfið er hannað af STEFNU hugbúnaðarhúsi, í samstarfi íþróttahreyfingar og Frístundasviðs Sveitarfélagsins. Með þessu kerfi er m.a. hægt að fylgjast með hvernig árgangar skila sér inn í íþróttir, hvernig skipting er milli kynja, þegar iðkendum fækkar eða fjölgar, hvaða íþróttagreinar eru vinsælar hverju sinni og hverjar þurfa hvatningu.

Á heimasíðu Tindastóls er hægt að sjá það íþróttastarf sem er í boði og er hægt er að skrá börnin hér eða inni á Íbúagáttinn.

Fleiri fréttir