Framtíðarskipan í skólamálum til umræðu á kynningarfundi
Kynningarfundur um framtíðarskipan í skólamálum verður haldinn í Félagsheimilinu Hvammstanga á morgun, þriðjudaginn 27. nóvember, klukkan 20:30. Samkvæmt Sjónaukanum er um að ræða kynningu á niðurstöðum starfshóps sem falið var að skoða framtíðarskipan í skólamálum.
Byggðaráð ákvað á fundi sínum þann 15. nóvember sl. að niðurstöðurnar séu grundvöllur til frekari umræðu og því efnt til þessa kynningarfundar fyrir íbúa í Húnaþingi vestra.