Fréttatilkynning sýslumannsins á Blönduósi vegna sameiningar Bæjarhrepps og Húnaþings vestra.
Hinn 1. janúar 2012 sameinast sveitarfélögin Bæjarhreppur og Húnaþing vestra og mun nafn hins sameinaða sveitarfélags verða eftirleiðis; Húnaþing vestra. Eftirfarandi breytingar verða á opinberri þjónustu ríkisins í fyrrum Bæjarhreppi:
- 1. Sýslumaðurinn á Blönduósi tekur við verkefnum sýslumannsins á Hólmavík.
Helstu verkefni eru þessi:
- Innheimta opinberra gjalda
- Umboð fyrir Tryggingastofnun ríkisins.
- Þinglýsingar
- Sifjamál
- Dánarbússkipti
- Aðfararmál
- Nauðungarsölur
- Lögræðismál
- Lögbókandamál
- Ökuskírteini og vegabréf
- Ýmis útgáfa leyfa
- Skráning firma
- 2. Lögreglustjórinn á Blönduósi tekur við verkefnum lögreglustjórans á Vestfjörðum.
Helstu verkefni eru þessi:
- Lögreglan á Blönduósi mun sinna eftirliti og útköllum.
- Rannsóknir lögreglumála og úrvinnsla þeirra færist til lögr. á Blönduósi
- Ýmis útgáfa leyfa færist til lögr. á Blönduósi.
Fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði milli kl. 13:00 – 15:00 mætir sýslumaður / lögr.stjóri eða löglærður fulltrúi hans í umboðskrifstofu embættisins sem staðsett er að Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga.
Helstu upplýsingar um embættið:
Sýslumaðurinn á Blönduósi - Hnjúkabyggð 33 - 540 Blönduós –
Sími 455-2600 - Fax 455-2601 - Netfang blonduos@syslumenn.is Kennitala 570269-5269 - Banki 0307 - hb. 26 - reikningsnr. 995 Skrifstofan er opin virka daga kl. 09 - 15:00. Símaþjónusta er á sama tíma.
Lögreglan á Blönduósi – Sama stað. Sími 455-2666 – Fax 455-2667 |
Frekari upplýsingar um embættið er að finna á heimasíðum þess á: „syslumenn.is“ og „logreglan.is“.
Blönduósi, 29. desember 2011
Bjarni Stefánsson, sýslumaður á Blönduósi