Fréttir af höfninni - mettúr hjá Málmey
Málmeyjan kom til hafnar á Sauðárkróki þann 10. júlí með tæpa átta þúsund kassa af frystum afurðum sem gerir rúm 200 tonn en uppistaða afla var aðallega grálúða. Áður hafði Málmeyjan gert stutt löndunarstopp í Reykjavík þar sem 500 tonnum hafði verið komið á land en þessar landanir teljast til sama túrsins þar sem áhöfnin fór vart í land og því mettúr.
Fyrir helgi landaði Klakkur tæpum 30 tonnum af ferskum sjávarafurðum en fer nú í allsherjar yfirhalningu fram yfir verslunarmannahelgi.
Strandveiðar hafa gengið vel enda blíða á miðunum en þeir veiða helst þorsk og ufsa. Hver bátur má veiða í 14 klukkutíma í túr hafa leyfi til að veiða allt að 774 kg í þorskígildum. Fast að 20 bátar gera út á strandveiðar á Skagafirði, um 12 bátar sem leggja upp frá Sauðárkróki og 7 frá Hofsósi en þaðan róa 2 bátar að auki sem gera út á línu. Ágætis veiði hefur verið hjá þeim og er ýsa uppistaða aflans.