Fréttir af unglingastarfi Golfklúbbs Sauðárkróks
Um síðustu helgi fór fram íslandsmót unglinga 18 ára og yngri á Grafarholtsvelli í Reykjavík.Mikið fjölmenni var á mótinu og komust færri að en vildu og voru takmarkanir í flestum flokkum. Alls voru 144 þátttakendur. 3 keppendur fóru frá Golfklúbbi Sauðárkróks og stóðu sig með prýði.
Í flokki 14 ára og yngri stúlkna keppti Aldís Ósk Unnarsdóttir og varð í 8.sæti.
Í flokki 15-16 ára kepptu Sigríður Eygló Unnarsdóttir og varð í 12 sæti í stúlknaflokki og Arnar Geir Hjartarson sem að varð í 15.sæti í drengjaflokknum.
--
Arnar Geir Hjartarson og Elvar Ingi Hjartarson tóku þátt í íslandsmótinu í holukeppni sem að er hluti af Arion banka mótaröð unglinga í Borgarnesi 26.júlí s.l. Arnar Geir varð í 7. sæti eftir höggleikinn og komst þar með í 16 manna úrslit fyrir holukeppnina. Þar keppti hann við sterkan kylfing úr GR og tapaði 3/2. Elvar Ingi komst hins vegar ekki í 16 manna úrslit.
Um verslunarmannahelgina fóru síðan Jónas Már Kristjánsson, Pálmi Þórsson, Elvar Ingi Hjartarson og Arnar Geir Hjartarson og kepptu í golfi á unglingalandsmótinu sem að fór fram á Egilsstöðum. Ekkjufellsvöll voru langflestir að spila í 1.skipti og kom hann skemmtilega á óvart og er mjög fjölbreyttur og öðruvísi en við eigum að venjast. 66 þátttakendur voru skráðir þar til leiks en 45 luku þar keppni. Arnar Geir sigraði í 16-18 ára flokki, Jónas varð í 8.sæti í 14-15 ára flokki, Elvar Ingi varð í 4.sæti í flokki 11-13 ára og Pálmi varð í 13.sæti í sama flokki.
--
Þá hafa kylfingar verið valdir sem að keppa í sveitakeppnum unglinga á næstunni.
Sveitakeppni drengja 15 ára og yngri sem að haldin verður á Flúðum 19.-21.ágúst n.k.
Þeir eru:
Arnar Ólafsson
Atli Freyr Rafnsson
Elvar Ingi Hjartarson
Hlynur Freyr Einarsson
Jónas Már Kristjánsson
Pálmi Þórsson
Þá sendir klúbburinn einnig stúlknasveit í flokki 18 ára og yngri sem að haldin verður sömu daga í Leirunni við Keflavík.
Þær eru:
Aldís Ósk Unnarsdóttir
Hekla Kolbrún Sæmundsdóttir
Matthildur Kemp Guðnadóttir
Sigríður Eygló Unnarsdóttir
--