Friðartré á Bangsatúni
Eins og greint hefur verið frá hér á vefnum er alþjóðlegt friðarhlaup á ferð um landið og hefur verið hlaupið um Norðurland vestra undanfarna daga. Á mánudag komu friðarhlauparar á Sauðárkrók, en í gær var hlaupið gegnum Blönduós og Hvammstanga. Að því loknu var plantað friðartré á Bangsatúni.
Friðarhlaupið (World Harmony Run) er alþjóðlegt kyndilboðhlaup sem er kennt við indverska friðarfrömuðinn Sri Chinmony (Sri Chinmony Oneness-Home Peace Run). Tilgangur hlaupsins er að efla frið, vináttu og skilning manna og menningarheima á milli. Sem tákn um þessa viðleitni bera hlaupararnir logandi kyndil, sem berst manna á milli í þúsundum byggðarlaga í yfir hundrað löndum.
Friðarhlaupið safnar ekki fé og leitar ekki eftir stuðningi við pólitískan málstað. Markmið hlaupsins er einfaldlega að auka meðvitund um að friður, vinátta og skilningur hefst í hjarta hvers og eins. Friðarhlaupið fer fram í öllum heimsálfum ár hvert og er þetta í 20. skiptið sem hlaupið er á Íslandi.